Komast í gang

Hvernig vel ég og breyti útliti (Theme)?

Útlitið (theme) stjórnar grunnrömmum vefverslunarinnar – staðsetningu valmynda, leturgerðum og uppsetningu vöru.

Hér sýnum við hvernig þú skoðar ný útlit, notar Live preview án þess að breyta „live“ vefnum og svo aðlagar útlitið að þínu vörumerki.

1. Skoða og velja nýtt útlit

Til að sjá hvaða útlit eru í boði gerir þú eftirfarandi:

  1. Skráðu þig inn á stjórnborðið þitt.
  2. Veldu Útlit (Appearance) í valmyndinni vinstra megin og smelltu á Þemu (Themes).
  3. Þar sérðu lista yfir öll útlit sem eru í boði í Karró og getur flett í gegnum þau.

2. Forskoða (Live Preview) – mjög mikilvægt!

Áður en þú smellir á „Virkja“ er alltaf best að sjá hvernig útlitið kemur til með að líta út með þínum vörum og gögnum.

  1. Færðu músina yfir útlitið sem þú vilt skoða og smelltu á „Live Preview“ (Forskoða).
  2. Þá opnast gluggi þar sem þú sérð vefverslunina þína í nýja búningnum.

Athugið: Á þessu stigi hafa engar breytingar orðið á vefnum þínum. Kúnnar sjá enn gamla útlitið þar til þú virkjar nýja þemað.

Ef þér líst vel á breytinguna smellir þú á „Activate & Publish“ efst í vinstra horninu til að gera nýja útlitið sýnilegt.

3. Aðlaga liti og lógó (Customizer)

Þegar þú hefur valið rétta þemað þarftu að gera það að þínu. Það gerir þú í Sérsníða (Customize) tólinu.

  1. Farðu í Útlit > Sérsníða (Customize).
  2. Farðu í gegnum eftirfarandi flokka:
  • Site Identity: Hlaðið upp lógóinu þínu og Site Icon (litla tákninu í vafranum).
  • Colors: Breyttu grunnlitunum (hnappalitir, bakgrunnur o.fl.) í liti vörumerkisins.
  • Typography: Veldu leturgerðir sem passa við þinn stíl.
  • Header & Footer: Stjórnaðu því hvað birtist efst og neðst á síðunni (t.d. símanúmer og samfélagsmiðlar).

Mundu að smella á „Publish“ þegar þú ert ánægð(ur) með breytingarnar svo þær taki gildi.

4. Breyta forsíðunni (Drag & drop)

Útlitið (theme) stjórnar rammanum utan um síðuna, en innihaldið á forsíðunni – myndir, textar og vöruborðar – er yfirleitt stýrt af ritli eins og Elementor.

  1. Farðu á forsíðuna þína og smelltu á „Edit with Elementor“ (eða „Breyta síðu“ eftir því hvaða ritill er í gangi).
  2. Þar geturðu dregið inn nýjar einingar, breytt texta í borðum og raðað upp vörulistum með einföldum hætti.

Algengar spurningar

Hverfa vörurnar mínar ef ég skipti um útlit?

Nei. Vörur, pantanir og síður (t.d. „Um okkur“) eru geymdar í gagnagrunninum. Útlitið breytir bara því hvernig þessar upplýsingar eru birtar. Þú tapar engum gögnum við að skipta um theme.

Hvað ef ég finn ekki útlit sem hentar?

Ef þú finnur ekki sniðmát sem passar fullkomlega geta sérfræðingar Karró aðlagað útlit fyrir þig eða sérhannað nýtt. Hafðu samband við okkur í þjónustuborðinu og við finnum lausn.

Get ég notað útlit sem ég keypti annars staðar (t.d. Themeforest)?

Karró er lokað vistkerfi til að tryggja hraða, öryggi og stöðug uppfærslur. Við styðjum eingöngu þau útlit sem eru í boði í kerfinu okkar – þannig minnkum við líkur á því að vefurinn brotni við uppfærslur.