Aðgangur & lén

Tölvupóstfang fyrir lénið þitt (@minbud.is)

Netföng eins og minbud@gmail.com geta litið ófagmannlega út. Með netfangi sem passar við lénið þitt, eins og info@minbud.is eða nafn@minbud.is, byggirðu upp meira traust og sterkara vörumerki.

Karró býður upp á örugga tölvupóstþjónustu hjá Rackspace – við sjáum um tæknina, þú notar einfalt og traust netfang í daglegum samskiptum.

Af hverju @minbud.is í stað @gmail.com?

Netfang sem passar við lénið þitt sýnir fagmennsku og styrkir vörumerkið. Viðskiptavinir treysta frekar póstum frá info@minbud.is en minbud@gmail.com.

Við sjáum um að hýsa póstinn hjá Rackspace með góðri vörn gegn ruslpósti og traustri uppitíma, svo þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af tækninni.

Verð og hvað er innifalið

  • Verð: 790 kr. + vsk á mánuði fyrir hvert netfang.
  • Geymslupláss: 25 GB fyrir hvert pósthólf.
  • Vörn gegn ruslpósti og óæskilegum pósti.
  • Aðgangur að öruggum vefpósti (webmail).

Við setjum upp þjónustuna fyrir þig og höldum henni gangandi – þú greiðir einfalt mánaðargjald fyrir hvert virkt netfang.

Hvernig panta ég ný netföng?

Þú þarft ekki að eiga við flóknar póststillingar eða DNS-breytingar. Láttu okkur einfaldlega vita hvaða netföng þú vilt.

  1. Sendu tölvupóst á karro@karro.is.
  2. Skrifaðu hvaða netföng þú vilt stofna, t.d. sala@thittlen.is og info@thittlen.is.
  3. Nefndu hvaða lén á að nota (t.d. thittlen.is).

Við stofnum aðgangana samdægurs (á virkum dögum) og sendum þér notandaupplýsingar og upphafslykilorð.

Uppsetning í síma, Outlook eða Gmail

Þegar þú hefur fengið aðgangsupplýsingarnar geturðu sett póstinn upp í síma, tölvu eða vefpósti. Notaðu eftirfarandi Rackspace-stillingar:

Aðgangsupplýsingar

  • Email address: netfangið þitt (t.d. info@minbud.is).
  • Password: lykilorðið sem við sendum þér.

Innhólf – IMAP (Incoming mail server)

  • Server: secure.emailsrvr.com
  • Port: 993
  • SSL: Já (SSL/TLS).

Úthólf – SMTP (Outgoing mail server)

  • Server: secure.emailsrvr.com
  • Port: 465
  • SSL: Já (SSL/TLS).
  • Requires authentication: Já – notaðu sama netfang og lykilorð og fyrir innhólf.

Algengar spurningar

Get ég notað Gmail viðmótið?

Já. Þú getur bætt þessu netfangi við Gmail undir „Check mail from other accounts“ og „Send mail as“. Notaðu IMAP/SMTP stillingarnar hér að ofan þegar þú tengir það.

Hvað geri ég ef ég gleymi lykilorðinu?

Sendu okkur póst á þjónustuborðið (frá öðru netfangi eða í gegnum samskiptaformið á síðunni) og við endurstillum lykilorðið fyrir þig.

Er hægt að nota alias (t.d. bokhald@ sem vísar á info@)?

Já. Við getum stofnað alias-netföng án aukakostnaðar. Þá tekur t.d. bokhald@minbud.is á móti pósti en allt lendir í innhólfinu hjá info@minbud.is.