Aðgangur & lén

Hvernig tengi ég .is lénið mitt (ISNIC)?

Til að verslunin þín opni á réttri slóð, eins og minbud.is, þarftu að beina léninu á Karró. Við höfum einfaldað ferlið svo þú þurfir ekki að fikta sjálf(ur) í DNS-stillingum.

Með því að skrá Karró sem tæknilegan tengilið (Zone contact) stjórnum við nafnaþjónum og öryggi fyrir þig – án þess að þú missir eignarhald á léninu.

1. Skráðu þig inn á ISNIC

Langflest íslensk .is lén eru vistuð hjá ISNIC.

  1. Farðu á www.isnic.is.
  2. Smelltu á „Innskráning“ efst í hægra horninu.
  3. Skráðu þig inn með auðkennislykli eða rafrænum skilríkjum (Rafræn skilríki í síma eða kortalesara).

2. Breyta tæknilegum tengilið (Zone contact)

Með þessu veitir þú okkur leyfi til að stýra tæknimálum lénsins (DNS), en þú ert áfram eigandi lénsins.

  1. Veldu lénið sem þú vilt tengja úr listanum „Mín lén“.
  2. Smelltu á flipann eða hnappinn sem heitir „Tengiliðir“.
  3. Finndu línuna sem heitir „Tæknilegur tengiliður (Zone contact)“.
  4. Smelltu á „Breyta“ við hliðina á henni.
  5. Sláðu inn eftirfarandi auðkenni í reitinn:NE2201-IS
  6. Vistaðu breytinguna.

3. Láttu okkur vita

Þegar þú hefur skráð Karró sem tæknilegan tengilið þurfum við staðfestingu frá þér til að klára stillingarnar.

  1. Sendu tölvupóst á karro@karro.is.
  2. Í efnislínu: „Tenging á léni: [lénið þitt]“.
  3. Í bréfinu getur staðið t.d.: „Ég er búin(n) að breyta tæknilegum tengilið í NE2201-IS.“

Eftir það taka sérfræðingar Karró við, uppfæra nafnaþjóna (nameservers) og tryggja að lénið beini rétt á vefverslunina. Við virkjum jafnframt SSL öryggisskilríki (lásinn í vafranum).

Hvað gerist svo?

Eftir að við höfum stillt nafnaþjónana getur tekið smá tíma fyrir breytingarnar að dreifast um netið.

Reiknaðu með allt að 24 klukkustunda biðtíma þar til lénið þitt bendir alls staðar á nýju vefverslunina. Það er þó algengt að breytingin virki fyrr fyrir flesta notendur.

Algengar spurningar

Missi ég eignarhald á léninu?

Nei. Þú ert áfram skráður Registrant (eigandi) og Administrative contact. Karró er aðeins skráð sem Zone contact (tæknilegur tengiliður) til að sjá um hýsinguna og DNS-stillingar.

Hvað ef ég á ekki lén ennþá?

Þú getur keypt lén á isnic.is. Í skráningarferlinu geturðu strax skráð NE2201-IS sem tæknilegan tengilið – þá getum við tengt lénið við Karró án þess að þú þurfir að breyta stillingum síðar.

Gilda sömu reglur um .com lén?

Ef þú ert með .com eða annað alþjóðlegt lén (t.d. hjá GoDaddy eða Namecheap) er ferlið aðeins öðruvísi. Þar þarf oftast að breyta nameservers sjálf(ur) eða veita okkur aðgang að lénastjórnborðinu. Sendu okkur línu á karro@karro.is og við leiðbeinum þér í gegnum það.