Komast í gang
Setja inn fyrstu vöruna
Að setja inn vörur er kjarninn í rekstri vefverslunarinnar. Karró gerir þetta einfalt – hér förum við í gegnum ferlið skref fyrir skref.
Við byrjum á einfaldri vöru (t.d. „Húfa“ eða „Kaffibolli“) og útskýrum muninn á langri lýsingu og stuttri lýsingu, auk verðs, mynda og flokka.
1. Búa til nýja vöru
Fylgdu þessum skrefum til að búa til fyrstu vöruna þína:
- Skráðu þig inn á stjórnborðið.
- Í valmyndinni vinstra megin, smelltu á Vörur (Products).
- Smelltu á hnappinn „Bæta við vöru“ (Add New) efst á síðunni.
2. Nafn og lýsing
Nú sérðu ritilinn þar sem þú setur inn grunnupplýsingar um vöruna.
- Vöruheiti (Product name) – gefðu vörunni skýrt nafn. Þetta birtist í leitarniðurstöðum, pöntunum og kvittunum.
- Vörulýsing (aðalritillinn / Description) – hér skrifarðu langari lýsingu á vörunni: efni, notkun, stærðir, umhirðu o.s.frv. Þessi texti birtist oftast neðst á vörusíðunni undir flipanum „Lýsing“.
- Stutt lýsing (Short description) – skrollaðu niður að reitnum „Stutt lýsing“. Þetta ersmátextinn við hliðina á myndinni og verðinu. Hafðu hann stuttan og söluhvetjandi, t.d. „Mjúk ullarhúfa, framleidd á Íslandi“.
Góð regla: Stutta lýsingin selur vöruna, löng lýsing svarar öllum spurningunum.
3. Vörugögn (verð og lager)
Fyrir miðju skjásins er box sem heitir Vörugögn (Product data). Þar seturðu inn verð, lager o.fl.
Almennt (General)
- Venjulegt verð (Regular price) – sláðu inn verðið með VSK.
- Tilboðsverð (Sale price) – ef varan er á útsölu seturðu lægra verð hér. Þá strikast yfir venjulega verðið og nýtt verð birtist á forsíðu/vörulistum.
Birgðir (Inventory)
- Vörunúmer (SKU) – þitt eigið viðmiðunarnúmer, t.d.
HUFA-001. - Halda utan um lager (Manage stock?) – hakaðu við ef kerfið á að telja niður magn sjálfkrafa.
- Magn á lager (Stock quantity) – skráðu hversu mörg stykki eru til á lager.
4. Vörumyndir – mjög mikilvægt!
Hægra megin á skjánum sérðu box fyrir myndir.
- Vörumynd (Product image) – aðalmynd vörunnar. Hún birtist bæði í vörulistum og stór á vörusíðunni. Veldu bestu myndina hér.
- Vörusafn (Product gallery) – fleiri myndir af sömu vöru, t.d. úr öðrum sjónarhornum eða í öðrum aðstæðum.
5. Flokkun (categories)
Til að kúnnar finni vöruna þarftu að setja hana í réttan flokk.
- Hægra megin er hluti sem heitir Vöruflokkar (Product categories).
- Hakaðu við viðeigandi flokk, t.d. „Fatnaður“ eða „Gjafavara“.
- Ef flokkurinn er ekki til, smelltu á „+ Bæta við nýjum vöruflokki“ og búðu hann til.
6. Birta (Publish)
Þegar þú ert ánægð(ur) með vöruna ferðu í boxið „Birta“ (Publish) efst til hægri.
- Smelltu á Forskoða (Preview) til að sjá hvernig vörusíðan lítur út án þess að birta hana strax.
- Smelltu á Birta (Publish) til að setja vöruna í sölu á netinu.
Algengar spurningar
Hvað með vörur í mörgum stærðum (S, M, L)?
Þetta kallast breytileg vara (Variable product). Til að búa hana til, veldu „Variable product“ í fellilistanum í Vörugögn-boxinu í staðinn fyrir „Simple product“ og skilgreindu eiginleika (Attributes) eins og stærð og lit.
Hvernig tek ég vöru úr sölu án þess að eyða henni?
Í „Birta“ boxinu efst til hægri geturðu breytt Staða úr Útgefið (Published) í Drög (Draft). Þá hverfur varan af síðunni en er enn í kerfinu ef þú vilt virkja hana síðar.
Þarf ég að minnka myndirnar áður en ég hleð þeim upp?
Karró sér að mestu um að þjappa myndum, en það er samt gott að hlaða ekki upp risastórum skrám beint úr myndavél (t.d. 5MB+). Reyndu að halda helstu vörumyndum undir ~500KB fyrir hraðari vef.