Rekstur & pantanir
Endurgreiðslur og vöruskil
Vöruskil eru eðlilegur hluti af rekstri vefverslunar. Karró og WooCommerce gera þér kleift að framkvæma endurgreiðslur beint úr pöntuninni – sérstaklega þegar greiðslugáttir eins og Teya eða Rapyd eru tengdar.
Hér er ferlið frá því að þú finnur pöntunina, velur hvað á að endurgreiða, uppfærir lager og klárar endurgreiðsluna í einum stað.
1. Finndu pöntunina
- Skráðu þig inn á stjórnborðið.
- Farðu í WooCommerce > Orders (Pantanir).
- Smelltu á pöntunina sem á að endurgreiða til að opna hana.
2. Hefja endurgreiðslu (Refund)
Skrollaðu niður að vörulistanum í pöntuninni (fyrir neðan heimilisfangið). Þar sérðu lista yfir allar vörur sem voru keyptar.
Neðst vinstra megin í þessum kassa er hnappur sem heitir „Refund“ (Endurgreiðsla). Þegar þú smellir á hann breytist útlitið og birtast nýir reitir fyrir magn, upphæð og ástæðu.
3. Velja vörur og upphæð
Nú tiltekurðu nákvæmlega hvað á að endurgreiða.
- Magn (Qty) – ef kúnninn skilar 1 stk af 2, skrifarðu
1í reitinn við viðkomandi vöru. Kerfið reiknar upphæðina sjálfkrafa. - Refund shipping (Endurgreiða sendingarkostnað) – skrfaðu upphæð í „Shipping“-reitinn neðst ef þú ætlar líka að endurgreiða sendinguna.
- Reason (Ástæða) – valfrjáls. Gott að skrá t.d. „Passaði ekki“ eða „Gölluð vara“ til innanhússnotkunar.
4. Skila á lager (Restock items)
Þetta skref ræður því hvort lagerstaðan þín uppfærist.
Ef varan er í lagi og þú ætlar að selja hana aftur, vertu viss um að haka við „Restock refunded items“. Þá hækkar lagerstaðan sjálfkrafa um það magn sem skilað var.
Ef varan er ónýt eða þarf að farga henni skaltu taka hakið af svo lagerinn hækki ekki.
5. Framkvæma endurgreiðslu (Mikilvægt!)
Nú velurðu hvernig endurgreiðslan fer fram – sjálfvirkt eða handvirkt.
Valkostur A: Refund via Teya / Rapyd / Valitor (mælt með)
Ef pöntunin var greidd með korti í gegnum greiðslugátt sem styður endurgreiðslur sérðu hnapp eins og „Refund via Teya“.
- Veldu magn og upphæð samkvæmt skrefum hér að ofan.
- Smelltu á „Refund via …“ hnappinn.
- Kerfið sendir beiðnina í greiðslugáttina og peningurinn fer sjálfkrafa til baka á kort viðskiptavinarins.
Þú þarft ekki að fara inn í heimabanka eða gáttina sjálfa – allt gerir þú úr pöntuninni.
Valkostur B: Refund manually (handvirk endurgreiðsla)
Notaðu þetta aðeins þegar þú hefur þegar skilað peningnum handvirkt – t.d. með millifærslu í heimabanka, eða þegar greitt var með millifærslu í upphafi.
Hnappurinn „Refund manually“ uppfærir bara stöðuna og bókhald pöntunarinnar í WooCommerce – hann hreyfir ekki raunverulegt fé.
Bókhald – kreditreikningar
Ef þú ert með tengingu við Payday, DK eða Reglu ætti endurgreiðslan að búa til kreditreikning sjálfkrafa í bókhaldskerfinu þegar þú klárar ferlið hér að ofan. Það er gott að fylgjast sérstaklega með fyrstu skiptin og kíkja í bókhaldið til að staðfesta að kreditreikningurinn hafi skilað sér rétt.
Algengar spurningar
Hvað tekur langan tíma fyrir kúnnann að fá peninginn?
Eftir að þú smellir á endurgreiðslu tekur það yfirleitt 1–3 virka daga fyrir bankann eða kortafyrirtækið að skila fjárhæðinni inn á kort viðskiptavinarins.
Má ég neita að taka við vöruskilum?
Samkvæmt íslenskum lögum um neytendakaup hefur viðskiptavinur almennt 14 daga skilafrest frá afhendingu til að hætta við kaup, svo lengi sem varan er ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Undantekningar eru m.a. vörur sem renna fljótt út, sérsmíðaðar vörur og innsiglaðar hreinlætisvörur. Ræddu við bókara eða lögfræðing ef þú ert í vafa.
Get ég boðið inneign í stað endurgreiðslu?
Já – þá myndir þú búa til afsláttarkóða fyrir upphæðina (t.d. 10.000 kr.) og senda viðskiptavininum hann í tölvupósti, í stað þess að smella á „Refund via …“. Mundu þá að uppfæra stöðu pöntunar og lager eftir þörfum.