Rekstur & pantanir
Búa til afsláttarkóða (Coupons)
Afsláttarkóðar eru eitt öflugasta markaðstólið sem þú hefur – til að auka sölu, verðlauna viðskiptavini eða keyra herferðir eins og „SUMAR25“.
Hér lærir þú að búa til kóða, setja skýrar takmarkanir og forðast algeng mistök eins og að leyfa afslátt ofan á útsölu.
1. Búa til nýjan kóða
Fyrst þarftu að opna stjórnborðið fyrir afsláttarkóðum:
- Skráðu þig inn á stjórnborðið.
- Farðu í Marketing > Coupons (Afsláttarkóðar) – í eldri uppsetningum getur þetta verið WooCommerce > Coupons.
- Smelltu á „Add coupon“ (Bæta við kóða).
2. Nafn og lýsing
- Coupon code (Afsláttarkóði) – textinn sem viðskiptavinurinn slær inn í körfunni, t.d.
OPNUNeðaJOL24. Hafðu hann stuttan og auðveldann að muna. - Description (Lýsing) – valfrjáls athugasemd fyrir þig sjálfa(n), t.d. „Kóði sendur á póstlista í júní“. Kúnninn sér þetta ekki.
3. Stillingar (General)
Í boxinu „Coupon data“ velur þú hvernig afslátturinn virkar.
Discount type (Tegund afsláttar)
- Percentage discount – t.d.
20fyrir 20% af allri körfunni. - Fixed cart discount – fast krónuafsláttur af heildarkörfu, t.d.
1000fyrir 1.000 kr. afslátt. - Fixed product discount – fast krónuafsláttur af hverri vöru sem kóðinn gildir á (notað sjaldnar).
- Coupon amount (Afsláttarupphæð) – skrifaðu bara töluna (t.d. 20 eða 1000). Ekki setja
%merkið. - Coupon expiry date (Gildistími) – veldu dagsetningu þegar kóðinn hættir að gilda. Ef þú skilur reitinn eftir auðan gildir kóðinn ótímabundið.
4. Takmarkanir (Usage restrictions) – mikilvægt!
Smelltu á flipann „Usage restriction“ – hér kemurðu í veg fyrir tap og óæskileg tilboð.
- Minimum spend – lágmarks kaupupphæð. T.d. 5.000 kr. svo kóðinn virki bara ef verslað er fyrir meira en það.
- Individual use only – hakaðu við ef þú vilt að kóðinn virki einungis einn og sér, ekki með öðrum kóðum.
- Exclude sale items – mjög sniðugt að haka við til að banna afslátt ofan á útsöluvörur (t.d. 20% ofan á 50% afslátt).
- Products – veldu ákveðnar vörur sem kóðinn gildir á (ef hann á ekki að gilda á allt).
- Product categories – láttu kóðann gilda á heilan flokk, t.d. „Buxur“ eða „Skór“.
5. Notkunartakmörk (Usage limits)
Í flipanum „Usage limits“ stillir þú hversu oft má nota kóðann.
- Usage limit per coupon – heildarnotkun kóðans. Dæmi: settu
50ef bara fyrstu 50 pantanir eiga að fá afslátt. - Usage limit per user – hversu oft sama manneskja má nota kóðann. Oftast stillt á
1fyrir „velkomin“ afslátt.
6. Vista og prófa
Þegar þú ert búin(n) að stilla allt:
- Smelltu á „Publish“ (Birta) hægra megin til að virkja kóðann.
- Farðu svo í vefverslunina, settu vöru í körfu og prófaðu kóðann til að ganga úr skugga um að allt virki eins og þú ætlaðir.
Algengar spurningar
Hvernig býð ég upp á fría heimsendingu með kóða?
Í flipanum General geturðu hakað við „Allow free shipping“.
Mundu líka að virkja Free shipping í sendingarstillingum og stilla það þannig að það krefjist „A valid free shipping coupon“.
Get ég gert „Kauptu 2, fáðu 1 frítt“?
Hefðbundnir afsláttarkóðar í WooCommerce ráða sjaldan við flóknar BOGO-tilboð (Buy One Get One). Fyrir slík tilboð er betra að nota viðbætur eins og Advanced Coupons eða láta okkur setja upp sérsniðnar afsláttarreglur fyrir þig.
Hvar sér kúnninn afsláttinn?
Í körfunni og í greiðsluferlinu (Checkout) birtist reitur sem segir „Áttu afsláttarkóða?“ / „Have a coupon?“. Þegar kóðinn er sleginn inn uppfærist heildarupphæðin strax og afslátturinn birtist í samantektinni.