Aðgangur & lén
Bæta við starfsmanni (Users)
Þegar verslunin stækkar er mikilvægt að hver starfsmaður hafi sinn eiginn aðgang í stað þess að deila lykilorðum. Þannig getur þú stýrt því hvað fólk má gera og séð hver gerði hvaða breytingu.
Hér sýnum við hvernig þú býrð til notanda og velur rétt hlutverk – með sérstakri áherslu á að nota Shop manager í stað „Administrator“ fyrir daglega notendur.
1. Búa til nýjan notanda
Skráðu þig inn á stjórnborðið sem stjórnandi (Administrator) áður en þú byrjar.
- Farðu í Users (Notendur) > Add New (Bæta við nýjum) í valmyndinni vinstra megin.
- Fylltu út nauðsynlega reiti:
- Username (Notendanafn) – nauðsynlegt og ekki hægt að breyta síðar. Notaðu einfalt nafn, t.d. jon eða verslunarstjori.
- Email – netfang starfsmannsins þar sem tilkynningar og lykilorð berast.
- First name / Last name – gott að fylla út til aðgreiningar, sérstaklega ef margir vinna í kerfinu.
- Website – má vera autt.
2. Lykilorð og tilkynning til starfsmanns
Kerfið býr sjálfkrafa til sterkt lykilorð fyrir nýjan notanda.
- Þú getur breytt lykilorðinu ef þarf, en við mælum með að halda því sterku.
- Hakaðu við „Send User Notification“ svo starfsmaðurinn fái tölvupóst með hlekk til að virkja aðganginn og velja sitt eigið lykilorð.
Þannig þarftu ekki að vita eða geyma lykilorð starfsmannsins – hann sér um það sjálfur.
3. Velja hlutverk (Role) – mjög mikilvægt
Neðst á síðunni finnurðu fellilista sem heitir Role (Hlutverk). Hér ákveðurðu hvaða réttindi starfsmaðurinn fær.
Verslunarstjóri (Shop manager) – mælt með fyrir starfsfólk
- Sérstakt hlutverk hannað fyrir WooCommerce-verslanir.
- Getur séð og breytt vörum, afgreitt pantanir og séð skýrslur.
- Getur búið til afsláttarkóða og unnið með daglegan rekstur.
- Getur ekki breytt viðbótum (plugins), grunnstillingum eða útliti síðunnar.
Þetta er öruggasti kosturinn fyrir flesta starfsmenn.
Stjórnandi (Administrator) – aðeins fyrir eigendur
- Hefur fullan aðgang að öllu: getur eytt síðunni, breytt lénum, stillingum, viðbótum og útliti.
- Gefðu þetta hlutverk aðeins eigendum eða traustum tæknistjórum.
Viðskiptavinur (Customer)
Þetta hlutverk er ætlað viðskiptavinum verslunarinnar – þeir geta aðeins séð sínar eigin pantanir og prófíl. Ekki nota þetta hlutverk fyrir starfsfólk.
4. Eyða starfsmanni
Ef starfsmaður hættir hjá þér er mikilvægt að loka aðganginum strax til að tryggja öryggi.
- Farðu í Users (Notendur) > All Users (Allir notendur).
- Færðu músina yfir notandann og smelltu á „Delete“ (Eyða).
Ef starfsmaðurinn hefur skrifað vörulýsingar eða bloggfærslur færðu spurninguna:
- „What should be done with content?“
- Veldu „Attribute all content to:“ og veldu þig eða annan stjórnanda.
- Ekki velja „Delete all content“ – þá hverfa allar vörur og greinar sem viðkomandi bjó til.
Algengar spurningar
Getum við verið tvö eða fleiri inni í kerfinu á sama tíma?
Já. Þið getið verið mörg innskráð á sama tíma á sitthvorri tölvunni og unnið t.d. í pöntunum eða vörum samtímis.
Hvernig breyti ég mínu eigin lykilorði?
Farðu í Users > Profile (Prófíll / My profile). Skrollaðu neðst og smelltu á „Set new password“ til að velja nýtt lykilorð.
Gleymdi starfsmaðurinn lykilorðinu?
Segðu viðkomandi að fara á innskráningarsíðuna [þittlen].is/wp-admin og smella á „Lost your password?“. Þá fær hann senda tölvupóst með hlekk til að búa til nýtt lykilorð – þú þarft ekki að gera það fyrir hann.