Rekstur & pantanir
Hvernig afgreiði ég pöntun?
Pöntunareiningin er sú aðgerð sem þú notar oftast. Hér förum við í gegnum ferlið frá því að pöntun berst, þar til sendingarmiði er prentaður og staða pöntunar uppfærð.
Við leggjum sérstaklega áherslu á stöðu pöntunar (status) og hvernig sendingarmiðar frá Dropp/Póstinum virka.
1. Finna nýjar pantanir
Þegar viðskiptavinur klárar kaup gerast tveir hlutir sjálfkrafa:
- Viðskiptavinurinn fær staðfestingarpóst („Takk fyrir pöntunina“).
- Þú færð tilkynningu og pöntunin birtist í stjórnborðinu.
- Skráðu þig inn á stjórnborðið.
- Smelltu á WooCommerce > Orders (Pantanir) í valmyndinni vinstra megin.
- Hér sérðu lista yfir allar pantanir.
- Processing (Í vinnslu) – greiðsla hefur borist og pöntunin bíður afgreiðslu.
- On hold (Biðstaða) – oftast ef valið er millifærsla og þú átt eftir að staðfesta greiðslu.
- Completed (Lokið) – pantanir sem þú hefur afgreitt.
Smelltu á pöntunarnúmer eða nafn viðskiptavinar til að opna pöntunina.
2. Yfirfara upplýsingar
Inni í pöntuninni sérðu stutt yfirlit:
- Hvað var keypt – listi yfir vörur, magn og verð.
- Shipping address – heimilisfang sem á að senda á.
- Payment method – hvernig var greitt (kort, Netgíró o.s.frv.).
- Customer note – skilaboð frá viðskiptavini, t.d. „Vinsamlegast pakkið inn í gjafapappír“.
3. Bóka sendingu (Dropp / Pósturinn)
Ef þú ert með sjálfvirkar sendingar í Karró þarftu ekki að skrifa utan á pakkann handvirkt.
- Hægra megin (eða neðst) í pöntuninni sérðu box fyrir Dropp eða Póstinn eftir því hvað viðskiptavinurinn valdi.
- Smelltu á hnappinn „Bóka sendingu“ / „Create label“.
- Kerfið sendir upplýsingarnar til flutningsaðilans og býr til PDF sendingarmiða.
- Prentaðu miðann og límdu á pakkann.
Ef þú notar Dropp færðu strikamerki sem þú skannar á Dropp-stað til að skrá pakkann inn í kerfið.
4. Ljúka pöntun (notify customer)
Þegar pakkinn er tilbúinn og kominn með miða þarftu að láta kerfið vita að pöntunin sé afgreidd.
- Finndu boxið Order status / Order actions efst til hægri.
- Breyttu stöðunni úr Processing (Í vinnslu) yfir í Completed (Lokið).
- Smelltu á „Update“ (Uppfæra).
Þá sendir kerfið sjálfkrafa tölvupóst til viðskiptavinar með skilaboðum um að pöntunin sé á leiðinni – og ef sendingarnúmer er til staðar fylgir það oftast með.
Algengar spurningar
Get ég breytt pöntun eftir á?
Já, svo lengi sem staðan er Processing (Í vinnslu). Þú getur breytt heimilisfangi með því að smella á blýantstáknið við hliðina á „Shipping address“. Þú getur líka bætt við eða fjarlægt vörur, en ef upphæðin hækkar þarf viðskiptavinurinn að greiða mismuninn.
Hvernig geri ég endurgreiðslu (refund)?
Neðst í vörulistanum í pöntuninni er hnappurinn „Refund“ (Endurgreiðsla).
- Smelltu á „Refund“.
- Skrifaðu upphæðina sem á að endurgreiða eða veldu viðeigandi vörur.
- Smelltu á „Refund via [greiðslugátt]“ (t.d. „Refund via Teya“). Þá fer peningurinn sjálfkrafa til baka inn á kort viðskiptavinar.
Kúnninn segist ekki hafa fengið staðfestingarpóst – hvað geri ég?
Athugaðu fyrst að netfangið undir Billing sé rétt. Oft lendir pósturinn líka í „Spam“ eða „Promotions“.
Þú getur sent pöntunarupplýsingarnar aftur með því að velja „Send order details to customer“ í „Order actions“ hægra megin og smella svo á „Update“.